Íslenskum fyrirtækjum býðst að taka þátt í Ukraine Business Compact
Yfirvöld í Úkraínu og Bretlandi munu í sameiningu standa fyrir ráðstefnunni Ukraine Recovery Conference (UCR23) í Lundúnum dagana 21. – 22. júní. Viðburðinn sækja ráðherrar víða að, ásamt fulltrúum alþjóðastofnana og fyrirtækja. Þar mun fyrirtækjum á alþjóðavísu bjóðast að gerast aðilar að Ukraine Business Compact og sýna í verki stuðning við uppbyggingu og framtíðartækifæri í Úkraínu eftir stríð.
Á ráðstefnunni stendur til að hleypa Ukraine Business Compact formlega úr vör en með því verður til vettvangur sem gefur atvinnulífinu færi á að lýsa yfir stuðningi og vilja til þátttöku í uppbyggingu og tækifærum í Úkraínu að afloknu stríðinu sem þar geisar.
Með undirskrift gengur fyrirtæki í raðir þúsunda annarra um allan heim sem vilja styðja við bata og uppbyggingu Úkraínu framtíðarinnar – með því að nýta viðskiptatækifæri sem þar munu með tíð og tíma opnast, eiga í samstarfi, deila þekkingu o.fl.
Þegar hefur verið opnað fyrir þátttöku í UBC – bæði í gegnum vefinn auk þess sem einnig er hægt að fylla út eyðublað og senda í t-pósti. Þá er einnig hægt að skrá sig á online fyrirtækjaviðburð UCR23 ráðstefnunnar.
Sjá nánar:
- Um Ukraine Business Compact – vefur og skráning
- Um Ukraine Recovery Conference (UCR23) – vefsíða ráðstefnunnar
- Annað:
- Skráningareyðublað (pdf)
- Ukraine Business Compact Formal invitation to sign
- Ukraine Business Compact FAQ
- Ukraine Business Compact Privacy Notice
Fyrirspurnir berist Heimstorginu hér - eins má hafa samband við sendiráð Íslands í Lundúnum hér.
Lönd / Heimsálfa
ÚkraínaTækifæri
Markaðstækifæri