Viðskiptaþróun, nýsköpun og lítil og meðalstór fyrirtæki í Rúmeníu
Opið er fyrir styrkumsóknir í Uppbyggingasjóð EES á sviði nýsköpunar og viðskiptaþróunar, lítil og meðalstór fyrirtæki.
Markmið styrkveitingar er að styðja við lítil og meðalstór fyrirtæki í þróun á nýjum og grænum tæknilausnum, innan bláa hagkerfisins og á sviði upplýsingatækni (ICT).
Fjárhæð styrks í hverju verkefni getur verið á bilinu 10.000 til 200.000 EUR . Heildarfjármagn tilvonandi úthlutunar er 3.584.738 EUR.
Fyrirkomulagið er þannig að styrkirnir eru veittir rúmenskum fyrirtækjum, en þau eru hvött til samstarfs við aðila frá Íslandi, Noregi eða Liechtenstein. Þannig skapast tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til þátttöku í verkefnunum, en forsendan er þó sú að þau komist í samstarf við fyrirtæki í Rúmeníu.
Hér er heimasíða verkefnisins. Umsóknarfrestur er til 14. júlí 2022.
Frekari upplýsingar veitir Egill Níelsson hjá Rannís.
Við hvetjum áhugasöm fyrirtæki til að skrá sig í gagnagrunn Utanríkisráðuneytisins yfir fyrirtæki sem eru áhugasöm um verkefni Uppbyggingasjóðsins en grunnurinn gerir erlendum og innlendum aðilum kleift að finna samstarfsaðila. Hér er hlekkur á skráningarform til að láta skrá sig á listann.
Lönd / Heimsálfa
OpiðRúmeníaUppbyggingalönd EvrópuTækifæri
Styrkur